











Full Iris Eau De Parfum
Mýkt. Viður og blóm. Unisex. Vegan
Full Iris Eau de Parfum er unisex, léttkryddaður og viðarkenndur ilmur unnin úr Írisblómi, einn af fjórum ilmum úr nýju Full Flowers línunni okkar. Þessir ilmir eru marglaga, enda samsettir úr blómum, laufum og stilkum blómanna sem þeir eru kenndir við ásamt ýmiskonar öðru góðgæti sem gefur hverjum ilmi sinn einstaka blæ. Í þessu ilmvatni má greina, auk Írisblómsins, hlýjan og mjúkan sedrusvið og frískandi einiber. Ilmurinn breytist eftir því sem dagurinn líður enda er hann flókinn og margslunginn. Falleg flaskan er úr endurunnu gleri, sem má endurvinna enn á ný, tappinn er úr viði og korki og ilmurinn er vegan.
- Endingargott Eau de Parfum
- Mjúkur, viðarkenndur blómailmur
- Einiber, Íris og sedrus
- Gerður úr seyði Írisblóma frá suður-Frakklandi
- Vegan
Skráðu þig í klúbbinn

Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.

Aldrei prófað á dýrum

Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Innihaldsefni
Alcohol Denat. (69.9%), Aqua/Water/Eau, Parfum/Fragrance, Linalool, Limonene, Citral.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.