This site has limited support for your browser. We recommend switching to Edge, Chrome, Safari, or Firefox.

Frí heimsending af öllum pöntunum yfir 10.000kr

The Body Shop í 50 ár

Skráðu þig á póstlistann

Karfan þín 0

Til hamingju! Þú færð ókeypis heimsendingu. Bættu 10.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Við eigum því miður ekki nógu mörg eintök af þessari vöru.

Pair with
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður er reiknaður í næsta skrefi.
Glow Body & Lip OilsGlow Body & Lip Oils

Glow Body & Lip Oils

Innblásin af sólkysstum sumardögum gefur Glow-línan þér ljóma allan daginn, án flókinnar rútínu. Kynntu þér varaolíurnar sem gefa vörunum vanilluilmandi gljáa og Aurora Shimmer Body Mist sem skilur eftir sig fínlegan glitrandi blæ. Fleiri vörur úr Glow-línunni koma í verslanir á næstunni.

Aurora Shimmer Body Mist

Fínlegt body mist sem fangar gleði bjartra sumardaga. Létt og klístrast ekki, gefur húðinni fínlegan glitrandi blæ frá toppi til táar og frískandi blómailm.

Skoða Aurora
Aurora Shimmer Body Mist

Varaolíur án vesens

Renndu á gljáa með vanilluilmi. Fullkomið fyrir sólríka daga.

Gylltur glitrandi blær

Gylltur glitrandi blær

Gylltur glitrandi blær ásamt hlýjum vanilluilmi sem kallar fram frístemningu, hvernig sem viðrar.

Finnst íGolden Glow Lip OilGolden Glow Lip Oil
Rauður glitrandi blær

Rauður glitrandi blær

Rauður glitrandi blær ásamt hlýjum vanilluilmi sem klæðir varirnar fyrir sólríka daga og hlý kvöld.

Finnst íCrimson Flare Lip OilCrimson Flare Lip Oil
Tær gljái

Tær gljái

Tær og gljáandi áferð með hlýjum vanilluilmi sem kallar fram sumarstemningu, án þess að fara upp í flugvél.

Finnst íClear Halo Lip OilClear Halo Lip Oil
Innblásið af náttúrunniLjómi á augabragðiLétt áferðInnblásið af náttúrunniLjómi á augabragðiLétt áferð

Algengar spurningar

Hver er munurinn á Crimson Flare, Golden Glow og Clear Halo varaolíunum?

Allar þrjár varaolíurnar eru með sömu léttu formúluna með vanilluilmi sem rennur mjúklega á varirnar. Munurinn liggur í áferðinni: Crimson Flare gefur rauðan glitrandi blæ, Golden Glow gyllt glitrandi blæ og Clear Halo tæran gljáa án litar.

Má nota Glow varaolíurnar einar og sér?

Já. Formúlan er hönnuð til að fara beint á berar varir og gefa strax gljáa og fallega áferð, án annarra varavara. Þú getur líka notað hana yfir varalit ef þig langar í meiri gljáa.

Hvernig ilmar Aurora Shimmer Body Mist?

Aurora Shimmer Body Mist er með frískandi blómailmi innblásnum af björtum sumardögum. Létta formúlan klístrast ekki og gefur húðinni fínlegan glitrandi blæ, fljótleg leið til að hressa upp á ljómann yfir daginn.

Má nota Glow varaolíurnar daglega?

Já. Létt formúlan hentar vel til daglegrar notkunar, hvort sem þú vilt bæta gljáa við einfalda förðun eða nota hana með öðrum vörum úr Glow-línunni. Berðu aftur á yfir daginn eftir þörfum.

Eru Glow vörurnar með sólarvörn?

Nei. Glow vörurnar innihalda ekki sólarvörn og verja ekki gegn UV-geislum. Notaðu sérstaka sólarvörn ef þú dvelur utandyra.

Henta Glow vörurnar allan ársins hring?

Já. Glow-línan var hönnuð til að gefa áreynslulausan ljóma án flókinnar rútínu, hvort sem er í sumarsól eða skammdegi.