Dewberry Body Butter 50ml
Body Butter með ótrúlega frískandi, ávaxtaríkum og blómlegum ilmi gerðum úr berjum, jasmín, fresíu og mildum musktónum. Dewberry var ein okkar vinsælasta baðlína á 10. áratugnum og er nú komin aftur, okkur til mikillar gleði. Inniheldur Community Fair Trade sheasmjör frá Ghana, ásamt CFT sesamolíu. Mýkir og nærir húðina í allt að 96klst og ilmar dásamlega . Kemur í endurvinnanlegum* umbúðum: plastdós og lok úr áli.
- Body Butter
- Nærir húðina og mýkir
- Hentar vel þurri húð
- Frískandi og ávaxtaríkur ilmur
- 50ml
*Þar sem aðstæður til endurvinnslu leyfa.
Skráðu þig í klúbbinn og fáðu 15% afslátt
Ókeypis heimsending fyrir pantanir yfir 10.000kr.
Aldrei prófað á dýrum
Skilafrestur á jólagjöfum er framlengdur til áramóta.
Community Fair Trade sheasmjör
Frá samstarfsaðilum okkar í Ghana. Sheasmjör er ríkt af fitu og með þétta, mjúka áferð sem gefur húðinni djúpan og góðan raka.

Community Fair Trade sesamolía
Silkimjúk og nærandi olía og gamalt fegrunarleyndarmál fyrir mýkri og sléttari húð. Okkar kemur frá Níkaragva.

Dewberry
Sætur og berjakenndur Dewberry ilmur. Sum klassísk uppáhöld fara aldrei úr tísku, þau verða bara betri með árunum.

Hvað gerir varan fyrir þig?
Gefðu húðinni rakann sem hún þráir með Dewberry Body Butter.
Ríkulegt kremið bráðnar inn í þurra húð og gefur raka í 96 klukkustundir, án þess að skilja eftir fitukennda áferð. Húðin verður samstundis sléttari, mýkri og vel nærð. Og ilmurinn? Ávaxtarík blómablanda af safaríkum dewberry-berjum, ferskum grænum laufum og fínlegri fresíu, á grunni af sedrusviði og mildum musk. Kunnuglegur og ljúfur, en samt alveg í takt við daginn í dag.
Eins og hlýtt faðmlag fyrir húðina, á hverjum degi.
- 97% sögðu að það bráðnaði auðveldlega inn í húðina*
- 97% fannst húðin dekruð og vel hugsað um hana*
- 93% fannst það sefa þurra húð samstundis*
*Notendakönnun meðal 106 þátttakenda á aldrinum 18 til 45 ára (90% konur).
Svona notarðu vöruna
- Taktu vel af Body Butter-inu.
- Nuddaðu því inn í þurra húð, sérstaklega á grófari svæði.
- Leyfðu því að ganga inn í húðina áður en þú klæðir þig.
- Paraðu við Dewberry Body Mist fyrir alla ávaxtaríku blómarútínuna.
- Notaðu daglega fyrir mýkri húð.
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir yfir 10.000kr.
Hægt er að fá heimsent með Dropp eða Íslandspósti. Ef pantað er fyrir kl 14:00, gerum við okkar besta til að koma pöntunni út samdægurs.
Einnig er hægt að sækja í verslunum okkar í Kringlu og Smáralind.
30-daga skilafrestur - sendu okkur vöruna til baka eða komdu við hjá okkur.
- Viðskiptavinir keyptu líka
- Nýlega skoðað